Skoppa og Skrítla fáóvænta gjöf frá Lúsí – leikandi létt púsluspil. Nú reynir á hvortáhorfendur geti hjálpað þeim að leika við hvern sinn fingur, setja ásig glingur ... og hver er það sem syngur? Jú, það er bakari svakari.En ... af hverju er hann á hvolfi? Og hérna ... ræna sjóræningjar sjó?Kunna blómin virkilega að tala? Og hvers vegna segir klukkan tikk-takk,en ekki bara takk fyrir takk?
Skoppa og Skrítla hafa veriðeftirlæti ungra leikhús- og bíógesta undanfarin ár. í þessari nýjustusýningu þeirra verða margar spurningar á vegi þeirra og því eins gottað Lúsí sé með svörin á reiðum höndum. Vinkonurnar láta sér að þessusinni ekki nægja að ferðast bara um heiminn. Onei. þær ferðast sko líkaum í tíma og hitta fyrir alls kyns fólk og fyrirbrigði sem við erumkannski ekki vön að sjá á rölti í miðbænum.
Syngjandi glöð sýning fyrir alla skemmtilega stubba, fjölskyldur þeirra – og klukkurnar þeirra.